Gimli Cup - frestaður leikur

Í gærkvöld var leikinn leikur úr 2. umferð sem frestað var þegar umferðin fór fram.

Það voru Fífurnar og Svarta gengið sem áttust við í gærkvöldi og fóru Fífurnar með sigur af hólmi, 5-3. Þar með hafa Fífurnar náð tveimur sigrum og stilltu sér upp á meðal fjögurra efstu, hafa tvo vinninga eins og Mammútar en fyrir ofan þessi lið eru Garpar og Skyttur með fullt hús, eða þrjá vinninga. Svarta gengið er hins vegar enn án sigurs í mótinu.

Öll úrslit og leikjadagskrá í excel-skjali hér.