Gimli Cup: Mammútar tryggðu sér sigur

Mynd: HI
Mynd: HI


Mammútar sigruðu Garpa, 8-3, í þriðju umferð Gimli Cup krullumóts0ins í gærkvöldi, en leiknum var frestað sl. mánudag. Með sigrinum hafa Mammútar tryggt sér efsta sætið í Gimli Cup krullumótinu þó svo ein umferð sé enn eftir.

Garpar komust yfir í byrjun, en Mammútar jöfnuðu, aftur komust Garpar yfir, en síðan unnu Mammútar þrjár umferðir og gerðu út um leikinn. Úrslit: Gapar - Mammútar 3-8.

Mammútar eru því búnir að tryggja sér sigur í mótinu. Þeir hafa unnið alla fjóra leiki sína til þessa, en næstu þrjú lið eru með tvo vinninga. Það eru Garpar, Ice Hunt og Urtur.

Lokaumferð Gimli Cup fer fram mánudagskvöldið 3. desember, þá eigast við:
Braut 2: Ice Hunt - Mammútar
Braut 3: Fífurnar - Skytturnar
Braut 4: Garpar - Urtur
Ísumsjón: Mammútar, Skytturnar, Urtur 

Öll urslit og leikjadagskrá (excel-skjal)