Gimli Cup: Þrjú á toppnum


Önnur umferð Gimli Cup krullumótsins fór fram í kvöld. Þrjú lið hafa unnið báða sína leiki og þrjú tapað báðum sínum. 

Úrslit 2. umferðar:
Urtur - Ice Hunt  8-2
Skytturnar - Mammútar  1-8
Fífurnar - Garpar  8-12 (eftir aukaumferð)

Garpar, Mammútar og Urtur eru jöfn á toppnum, hafa unnið báða leiki sína til þessa, en Ice Hunt, Skytturnar og Fífurnar eru án sigurs enn sem komið er.

Öll úrslit og leikjadagskrá (excel-skjal).

Þriðja umferð mótsins fer fram mánudagskvöldið 19. nóvember, en þá leika: 
Braut 2: Garpar - Skytturnar
Braut 3: Ice Hunt - Fífurnar
Braut 4 Mammútar - Urtur

Ísumsjón: Skytturnar, Mammútar, Urtur.