Gimli mótið 2016

Fjögur lið eru skráð til keppni og leikreglur eru þær að allir spila við alla í tvöfaldri umferð og sex endar eru í hverjum leik.   Jafntefli eru leyfð en tvö stig fást fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli.  Verði jafnt að stigum þegar móti líkur, telur fyrst innbyrðisviðureign, svo unnir endar og loks skoraðir steinar.   Það er skemmst frá því að segja að í fyrstu umferð sigruðu Garpar lið Ice Hunt og Rest sigraði Víkinga.  Mánudaginn 18. Janúar leika Garpar við Víkinga og Rest keppir við Ice Hunt. Skjal með nánari upplýsingum verður sett inn fljótlega.