Gimlicup þriðja umferð

Tvö lið taplaus eftir þrjár umferðir

Garpar og Mammútar eru enn taplaus eftir þrjár umferðir en þessi lið unnu leiki sína nokkuð auðveldlega í gærkvöldi. Garpar léku við Riddara og sigruðu fimm umferðir og samtals  9 - 1.  Mammútar léku við Fífur og sigruðu þeir einnig  fimm umferðir samtals  7 - 2. Garpar og Mammútar eigast einmitt við í næstu umferð og víst er að þar verður barist hart því það lið sem sigrar verður eitt á toppnum eftir fjórðu umferð.  Bragðarefir unnu einnig fimm umferðir í sínum leik við Víkinga og endaði sá leikur 8 - 1 . Svartagengið lagði síðan Skyttur 5 - 3  en hvort lið sigraði þrjár umferðir. Úrslit og leikjadagskrá verður efst á síðunni héðan í frá en þar má sjá allar upplýsingar um leikina, stöðuna og ísumsjón.