Haraldur vefstjóri yfirgefur landið og vefinn

Haraldur Ingólfsson sem hefur verið vefstjóri og ritstjóri krulluvefsins flytur af landi brott

Halli eins og við þekkjum hann best er að flytja til spánar á næstu dögum. Krullarar eru ekki aðeins að missa liðsmann úr krullu heldur ritstjóra vefsins okkar, leikjaskipuleggjanda, IceCup auglýsanda og margt fleira. Það er ljóst að erfitt verður að fylla skarð Halla hvað vefinn varðar og fáir komast í pennann hans eins og sagt er, en við þurfum að finna einhvern eða einhverja til að taka þessi störf að sér fyrir næsta tímabil og óska ég eftir tillögum um einhverja sem geta og vilja taka það að sér. Fyrir hönd stjórnar krulludeildar þakka ég Halla þá gríðarmiklu vinnu sem hann er búinn að leggja í vefinn, mótaskipulag, og samskipti við krullara vítt og breytt um heiminn á undanförnum árum. Við óskum Halla að sjálfsögðu velfarnaðar á nýjum slóðum og vonum að hann láti sjá sig á ICE CUP með sínu ( spænska ) liði einhverntímann. Hallgrímur Valsson formaður krulludeildar