Heimsmeistaramót haldið á Akureyri 2020

Þá er búið að staðfesta þann orðróm sem hefur verið á kreiki um að Heimsmeistaramótið í íshokkí kvenna verður haldið á Akureyri daganna 23. - 29. febrúar 2020. Þetta er í annað sinn sem slíkt mót er haldið á Akureyri og virkilega ánægjulegt að Akureyri sé orðin fullviðurkenndur keppnistaður fyrir mót af þessari stærðargráðu. Íslenska kvennalandsliðið er þáttakandi á mótinu og því ennþá skemmtilegra fyrir okkur Akureyringa að fá slíkt mót hingað heim. Frekari fréttir af mótinu koma von bráðar en við getum allavega farið að hlakka til ársins 2020.