HM heldur áfram í dag

Birta Helgudóttir í marki.  Mynd Mats Bekkevold
Birta Helgudóttir í marki. Mynd Mats Bekkevold

Í dag hefst dagur þrjú á Heimsmeistaramótinu hér í Skautahöllinni á Akureyri. Á mánudaginn, öðrum keppnisdegi, fóru fram þrír leikir. Króatía vann Úkraínu í vítakeppni, Ástralía rétt marði sigur gegn Tyrklandi 2 - 1 og um kvöldið vann íslenska liðið það Ný Sjálenska 4 - 1. Mörk Íslands skoruðu Sunna Björgvinsdóttir, Saga Blöndal og Silvía Björgvinsdóttir setti tvö. Stoðsendar áttu Sunna Björgvinsdóttir, Teresa Snorradóttir, Kolbrún Garðarsdóttir og Silvía Björgvinsdóttir. Í markinu stóð Birta Helgudóttur og fékk aðeins á sig eitt mark.

Í dag hefst dagskráin á leik Ástralíu og Króatíu kl. 13:00. Nýja Sjáland og Úkraína mætast kl. 16:30 og svo kl. 20:00 er aðalleikurinn þegar Ísland mætir Tyrklandi. Tyrkir eru með sterkt lið og sýndu það í leiknum á móti Ástralíu þannig að það er næsta víst að leikurinn í kvöld verður spennandi.

Við hvetjum sem flesta að leggja leið sína í Skautahöllina í kvöld - styðja stelpurnar og njóta þessarar hokkíhátíðar sem nú fer fram hér á Akureyri.