HM kvenna í Kóreu.

Dönsku stelpurnar voru rétt i þessu að tapa naumlega fyrir Sænsku stelpunum 6-7. 

Sennilega vilja stelpurnar gleyma þessum leik sem fyrst því þetta var leikur hinna mörgu mistaka og í raun ótrúlegt að hvað þær voru nálægt því að komast áfram þrátt fyrir þau mörgu mistök sem þær gerðu. En það er ekki öll nótt úti enn því þær leika um þriðja sætið við Kanada næstu nótt kl.01:00.  Úrslitaleikurinn á milli Kína og Svíþjóðar er kl. 06:30 í fyrramálið og verður hann í beinni á Eurosport.