Hokkídagur á laugardag leikið í bæði Hertz-deild karla og kvenna

Á laugardag verður sankallaður hokkídagur í Skautahöllinni en þá fara tveir leikir fram, SA Víkingar taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur í Hertz-deild karla kl. 16.30 og SA tekur svo á móti Reykjavík í Hertz-deild kvenna kl. 19.30. Aðgangseyrir er 1000 kr. á fyrri leikinn, frítt inn fyrir 16 ára og yngri og svo er frítt inn á seinni leikinn. Þettar eru jafnframt síðustu heimaleikir liðanna okkar fyrir úrslitakeppni. Bæði lið hafa nú þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og heimaleikjarétt. Úrslitakeppni karla hefst 12. mars og úrslitakeppni kvenna 16. apríl.

Laugardagurinn verður pottþétt skemmtun fyrir hokkíþyrsta svo fyllum höllina og hyllum deildarmeistaranna okkar.