Hokkíleikur ársins sýndur í beinni á N4

Vonandi verður
Vonandi verður


Skautafélag Akureyrar og Björninn mætast í hreinum úrslitaleik um íslandsmeistaratitil karla í íshokkíi á morgun miðvikudag kl:19:00. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4 og hefst hún kl:18:30. N4 næst á rás 15 eða 29 á Digital Ísland. Þá verður leikurinn einnig sýndur beint á Netinu á www.n4.is og á heimasíðu íshokkísambands Íslands www.ihi.is.

Útsendingin er unnin í samvinnu við: Íslensk Verðbréf, Goða, Bílaleigu Akureyrar og Thule

Íslensk Verðbréf, Goði, Bílaleiga Akureyrar og Thule í samstarfi við N4 - Sjónvarp Norðurlands sjá til þess að íshokkíleikur ársins 2010, þar sem SA tekur á móti Birninum í hreinum úrslitaleik meistaraflokks karla, verður sýndur í beinni útsendingu á morgun miðvikudag kl:19:00, útsending hefst kl 18:30. N4 næst á Digi...tal Ísland rás 15 eða 29. Leikurinn verður einnig sýndur beint á Netinu á www.n4.is og á www.ihi.is