Íbúð óskast til leigu

Krullufólki bætist liðsstyrkur í haust. Kanadískur krullumaður óskar eftir aðstoð við að finna sér leiguíbúð.

Tom McPherson, sem við munum eftir frá Ice Cup í vor, ætlar að flytjast til Akureyrar í haust ásamt eiginkonu sinni. Þau hjónin eru að leita að íbúð til leigu og óskuðu eftir því að undirritaður spyrðist fyrir meðal krullufólks hvort eitthvert okkar ætti eða vissi um ódýra leiguíbúð.

Hafið samband ef þið hafið eitthvað slíkt að bjóða eða vitið um íbúð.

Haraldur Ingólfsson - s. 824 2778 - haring@simnet.is.