Ice Cup 2017 hefst á morgun

Ice Cup alþjóðlegt krullumót fer fram í Skautahöllinni á Akureyri dagana 4 – 6 maí. Setning mótsins fer fram í kvöld kl 20.30 í Laut, kaffihúsinu í Lystigarðinum. 50 erlendir keppendur í ellefu liðum hafa skráð sig til leiks ásamt sjö íslenskum liðum. Það er Krulludeild Skautafélags Akureyrar sem stendur fyrir mótinu og er þetta í þrettánda sinn sem mótið er haldið. Alls eru 18 lið með um áttatíu manns skráð til keppni. Mótið hefst um klukkan 17. á fimmtudagskvöldið og því lýkur á laugardag með úrslitaleikjum sem hefjast milli kl. 14 og 15.  Mikla undirbúningsvinnu þarf til að búa til alvöru krullusvell og hófst sú vinna á sunnudagskvöld og stendur alveg fram að mótssetningu á fimmtudaginn.