Ice Cup 4 - 6 maí 2017

Skráningar gengu mjög hratt fyrir sig á Ice Cup sem haldið verður dagana 4-6 maí 2017.   Á aðeins nokkrum dögum fylltust öll 20 plássin sem við höfum til ráðstöfunar. Það verða væntanlega margir sem verða fyrir vonbrigðum með að komast ekki til okkar á næsta ári. Við urðum t.d. að vísa frá aðila frá Kanada sem ráðgerði að koma með fjögur lið með sér.