Ice Cup - fyrstu úrslit og næstu leikir

Mynd: Sigurgeir Haraldsson (2012)
Mynd: Sigurgeir Haraldsson (2012)

Nú hafa öll liðin í mótinu lokið einum leik og ljóst hverjir mæta hverjum í leikjum kl. 10 og 12.30 á morgun. Margir jafnir og spennandi leikir í fyrstu umferðinni, fjórir enduðu með eins stigs sigri og einn af þeim endaði þannig að mæla þurfti hvort liðið átti stein nær miðju og líklega munaði fjórum millimetrum.

Úrslit fyrstu umferðar:
Ice Hunt - Víkingar 4-5
Mánahlíðarhyskið - 3 Men and a Lady 6-7
Ladies and Gentlemen - NY Rock-ettes 3-7
Strympa - Bats from Hell 8-4
Snackbar Weight - Skytturnar 6-6
Üllevål - Fish Tacos 4-8
Garpar - Swedes on the Rocks 7-6
The Others - Fífurnar 6-7

Leikir á morgun, föstudag:
Kl. 10.00
Braut 1: Üllevål - The Others
Braut 2: Víkingar - Snackbar Weight
Braut 3: Skytturnar - Mánahlíðarhyskið
Braut 4: Swedes on the Rocks - Ice Hunt

Kl. 12.30
Braut 1: Strympa - NY Rock-ettes
Braut 2: Bats from Hell - Ladies and Gentleman
Braut 3: Fífurnar - Fish Tacos
Braut 4: 3 Men and a Lady - Garpar

Bein útsending var í gegnum SA TV og U-stream frá leikjum dagsins, en vegna þekkingarskorts og smávægilegra mistaka datt útsendingin ítrekað út. Við lofum bót og betrun á morgun, verðum með vélina í sambandi og tökum "power saving mode" af þannig að beina útsendingin ætti að ganga frá því kl. 10 í fyrramálið og fram á kvöld. Slóðin er einfaldlega sasport.is/TV (einnig tengill í valmyndinni til vinstri á forsíðu sasport.is.)