Íslandsmótið í 4. flokki í Skautahöllinni á Akureyri um helgina

Bein  tilrauna útsending á YouTube, og þar ætti að vera hægt að horfa í símum og spjaldtölvum líka.

Það verður líf og fjör í Skautahöllinni um helgina en þá fer fram Íslandsmótið í 4. flokki en mótið er annað í röðinni af þremur sem telja til Íslandsmótsins. Leikið er á laugardag frá kl 17.20 og svo hefst seinni umferðin á sunnudagsmorgun kl 8.00 og mótið klárast svo með verðlaunaafhendingu og pizzuveislu um kl 12.00 á sunnudag. Hér má finna dagskrá mótsins og fyrirkomulag.