Íslandsmótið í krullu: 12. umferð - BREYTT TÍMASETNING

Vegna úrslitaleiks SA og Bjarnarins í meistaraflokki karla í íshokkí á miðvikudagskvöld hefur tólfta umferð Íslandsmótsins í krullu verið færð til um einn dag og verður leikin fimmtudagskvöldið 11. mars. Krullufólk fær svellið kl. 20.00 það kvöld.

Leikir 12. umferðar, fimmtudagskvöldið 11. mars:

Braut 1: Svarta gengið - Üllevål
Braut 2: Mammútar - Víkingar
Braut 4: Fífurnar - Skytturnar
Braut 5: Garpar - Riddarar

Ísumsjón: Svarta gengið, Mammútar, Víkingar, Üllevål.

Við fáum svellið kl. 20.00, sem þýðir að leikir ættu að hefjast upp úr kl. 20.30.