Íslandsmótið í krullu: Fífurnar fjórða liðið inn í úrslitin

Svana stýrði Fífunum inn í úrslitin. Mynd: Halli
Svana stýrði Fífunum inn í úrslitin. Mynd: Halli


Með sigri í lokaumferðinni tryggðu Fífurnar sér sæti í úrslitakeppninni án þess að þurfa aukaleik til. Liðið fylgir Mammútum, Víkingum og Fálkum í úrslitin. Mammútar deildarmeistarar.

Fyrir lokaumferðina áttu voru þrjú lið búin að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni, en önnur þrjú áttu möguleika á fjórða sætinu, Fífurnar, Rennusteinarnir og Ís-lendingar. Rennusteinarnir töpuðu sínum leik, en Fífurnar lentu í spennandi lokaumferð gegn Víkingum og náðu að lokum að sigra. Fífurnar eru því einar í fjórða sætinu með fimm vinninga. Rennusteinarnir og Ís-lendingar, sem unnu sinn leik í kvöld, enduðu jafnir með fjóra vinninga og missa því af sæti í úrslitakeppninni.

Úrslit kvöldsins:
Svartagengið - Fálkar  3-9
Rennusteinarnir - Skytturnar  3-10
Víkingar - Fífurnar  8-10
Ís-lendingar - Ísherjar  8-4

Staðan:
1. Mammútar  7 vinningar
2. Víkingar  6 vinningar (unnu Fálka)
3. Fálkar  6 vinningar (töpuðu fyrir Víkingum)
4. Fífurnar  5 vinningar
5. Rennusteinarnir  4 vinningar (unnu Ís-lendinga)
6. Ís-lendingar  4 vinningar (töpuðu fyrir Rennusteinunum)
7. Ísherjar 2 vinningar
8. Skytturnar  1 vinningur, eiga einum leik ólokið.
9. Svartagengið 0 vinningar, eiga einum leik ólokið.
Hvernig sem frestaður leikur Svartagengisins við Skytturnar fer verða Ísherjar fyrir ofan Skytturnar vegna sigurs í innbyrðis viðureign þessara liða. Ef Svartagengið vinnur Skytturnar enda bæði liðin með einn vinning, en Svartagengið raðast ofar vegna sigursins í innbyrðis viðureigninni.

Úrslitakeppnin
Fyrsta umferð úrslitakeppninnar fer fram mánudagskvöldið 26. mars, en þá mætast annars vegar liðin í 1. og 2. sæti og hins vegar liðin í 3. og 4. sæti. Sama kvöld fer einnig fram frestaður leikur Svartagengisins við Skytturnar.

Leikir mánudagskvöldið 26. mars:
Braut 2: Mammútar - Víkingar  - Mammútar hafa val um síðasta stein, Víkingar hafa val um lit.
Braut 3: Fálkar - Fífurnar - Fálkar hafa val um síðasta stein, Fífurnar hafa val um lit.
Braut 4: Skytturnar - Svartagengið

Öll úrslit deildarkeppninnar má finna í excel-skjali hér.