Íslandsmótið: Skytturnar sigruðu Víkinga

Frestaður leikur úr annarri umferð leikinn í kvöld.

Víkingar unnu reyndar fyrstu þrjár umferðir leiksins og komust í 3-0 en Skytturnar snéru leiknum við í síðustu þremur umferðunum og unnu að lokum, 4-3. Með sigrinum í kvöld komust Skytturnar upp að hlið Víkinga og Riddara með tvo sigra í fjórum leikjum en fyrir ofan þessi lið eru Mammútar með þrjá sigra og Garpar með fjóra.

Sjötta umferð fer fram mánudagskvöldið 21. febrúar:

Braut 2: Skytturnar - Garpar
Braut 4: Riddarar - Fálkar
Braut 5: Víkingar - Mammútar

Ísumsjón: Garpar, Fálkar, Mammútar