Janúarmótið - úrslitaleikir

Úrslitaleikir Janúarmótsins verða leiknir á mánudagskvöld. Garpar og Mammútar leika um fyrsta sætið í janúarmótinu. Mammútar eru ákveðnir í að hefna ófara sinna frá síðasta leik þessara liða þegar Mammútar voru yfir 6 - 0 eftir fjórar umferðir en töpuðu leiknum 7 - 6 eftir ótrúlegan endasprett Garpa. Garpar munu án efa ekki að leyfa Mammútum að komast í slíka kjörstöðu aftur.  Svartagengið og Víkingar leika um þriðja sætið. Svartagengið og Víkingar áttust við í fyrstu umferð mótsins og sigruðu Víkingar þann leik 7 - 2 . Fífur og Skyttur leika um fimmta sætið og Pálmigroup og Ullevål um sjöunda sætið.  Liðið sem vinnur mótið fær auk bikars og verðlaunapeninga gjafabréf fyrir 5 manns fyrir hádegismat frá veitingahúsinu Strikið. Úrslitaleikirnir :
1 -2 sæti3-4 sæti5-6 sæti7-8 sæti
Braut 2Braut 3Braut 4Braut 5
GarparVíkingarFífurPálmi group 
MammútarSvartagengiðSkytturÜllevål
Ísumsjón samkvæmt áætlun var eftirfarandi en þar sem tvö af þessum liðum spila ekki verða fleiri að hjálpast að við svellið.
RiddararMammútarBragðarefirPálmi Group
Úrslitablaðið HÉR