Jóhann Már Íshokkímaður SA 2018

Jóhann Már Leifsson (mynd: Sigurgeir H.)
Jóhann Már Leifsson (mynd: Sigurgeir H.)

Jóhann Már Leifsson hefur verið valin íshokkíleikmaður ársins hjá Skautafélagi Akureyar árið 2018. Jóhann var einnig valin íshokkímaður ársins hjá Íshokkísambandi Íslands fyrir sama ár. Jóhann Már Leifsson var burðarrás í Íslandsmeistaraliði Víkinga á síðasta keppnistímabili og var ein helsta ástæðan fyrir velgengni Víkinga á síðari hluta tímabilsins í fyrra. Jóhann var einnig í landsliði Íslands á síðasta keppnistímabili.

Jóhann Már er 25 ára gamall sóknarmaður og hefur spilað með meistaraflokki SA frá 15 ára aldri. Jóhann hefur nú þegar orðið Íslandsmeistari 7 sinnum og hefur verið einn allra besti sóknarmaður deildarinnar síðastliðin ár. Jóhann spilaði einnig með Niagara Fury í CJHL deildinni í Bandaríkjunum tímabilið 2011/2012 og með Motala IF í Svíþjóð tímabilið 2015/2016. Jóhann hefur spilað 38 landsleiki fyrir Íslands hönd og skorað í þeim 19 stig.

Jóhann Már er gríðarlega lunkinn og skemmtilegur leikmaður sem hefur gott auga fyrir samspili og skorar að jafnaði mikið af mörkum. Jóhann hefur verið viðloðin yngri flokka þjálfun í félaginu sem og dómgæslu og er mikil og góð fyrirmynd fyrir ungu kynslóðina. Jóhann Már er svo sannarlega vel að nafnbótinni komin og við óskum honum hjartanlega til hamingju með nafnbótina.