Jussi Sipponen kveður SA

Jussi Sipponen
Jussi Sipponen

Aðalþjálfari SA íshokkí hann Jussi Sipponen er á förum frá félaginu eftir að hafa verið í fjögur ár í brúnni. Jussi mun snúa aftur til síns heima og taka við liðinu sem hann kom frá í upphafi en þar tekur Jussi við sem þjálfari karlaliðsins og U-18 ára liði VG-62 í heimabænum sínum Naantali í Finnlandi. Það er með söknuði sem Skautafélagið kveður Jussi sem hefur svo sannarlega hitt í hjartastað í hokkífjölskyldunni á Akureyri.

Jussi Sipponen kom upphaflega til SA á eins árs samningi árið 2015 en samstarfið við þennan viðkunnulega Finna varð afar farsælt og varði á endanum í fjögur tímabil. Jussi hefur tekið vel til hendinnar hjá félaginu á þessum fjórum árum en hann kom inn enn fagmannlegri nálgun á starfið og aukið skipulag sem yfirþjálfari félagsins. Reynsla hans og öðruvísi innsýn í íshokkíið hefur hjálpað félaginu að vaxa á þessum tíma og árangurinn verið með ólíkindum góður. Sem aðalþjálfari vann Jussi 11 Íslandsmeistaratitla. Hann vann Íslandsmeistaratitilinn öll árin sín fjögur sem þjálfari 3. flokks, þrisvar með meistaraflokki kvenna, þrisvar með meistaraflokki karla og nú í ár í fyrsta sinn með 2. flokki en Skautafélagið vann síðast titil í þeim flokki árið 2007. Á þessu tímabili og hans síðasta skilaði hann öllum mögulegum titlum í hús.

Jussi verður ekki síður saknað sem leikmanns en fáir leikmenn hafa veitt áhorfendum jafn mikla gleði með töfrum sínum á svellinu. Íshokkídeildin ásamt leikmönnum og velunnurum kvöddu Jussi formlega nú um helgina og veittu honum að tilefninu leikmanna treyjuna sína til eignar ásamt viðurkenningarskyldi með sínum afrekum sem þjálfari fyrir félagið. Þá var honum þakkað fyrir sín störf með nokkrum vel völdum myndum sem voru merktar með þeim orðum sem hafa verið einkennandi fyrir starf hans í félaginu. Íshokkídeild Skautafélagsins óskar Jussi velfarnaðar í nýju starfi en það er aldrei að vita hvort leiðir eigi eftir að liggja saman aftur síðar. Takk Jussi!

The Coach

The Magician

The Champion

Takk Jussi!