Kvennalandslið Íslands með mikilvægan sigur og verðlaunasæti tryggt.

Kvennalandslið Íslands í íshokkí vann í dag 2-0 sigur á Mexíkó og er þar með búið að tryggja sér verðlaunasæti á heimsmeistaramótinu á Spáni. Ísland hefur unnið þrjá leiki á mótinu en tapað einum. Íslenska liðið mætir því Ástralska á morgun kl 15.30 en þá ræðst hvaða litur verður á verðlaunapeningi liðsins. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu en útsendinguna má finna hér. Áfram Ísland!