Kvennalandslið Íslands í íshokkí hefur keppni á morgun

Kvennalandslið Íslands
Kvennalandslið Íslands

Kvennalandslið Íslands hefur keppni á heimsmeistaramótinu í II deild B á morgun en keppnin fer fram í Jaca á Spáni. Liðin sem eru í riðlinum auk Íslands eru: Ástralía, Belgía, Spánn, Mexíkó og Slóvenía. 

Fyrsti leikur liðsins er á morgun gegn Mexíkó en leikurinn hefst kl 12 á hádegi á Íslenskum tíma. Íslenska liðið lenti í 4. sæti í mótinu sem haldið var í Reykjavík í fyrra en besti árangur liðsins er 3. sætið í þessari deild. Í gærkvöld var sýnd myndbrot af æfingu liðsins í kvöldfréttum sem hægt er að sjá hér. Hægt er að fylgjast með úrslitum liðsins á heimasíðu alþjóða Íshokkísambandsins hér. Og svo að sjálfsögðu á fésbókarsíðu liðsins

SA eiga 11 leikmenn í liðinu í ár en þar að auki eru þær stöllur Eva Þorbjörg, Silja Rún og Diljá Sif sem allar spila erlendis uppaldar í SA. Hér má sjá hópinn í heild sinni.

Markmenn

 

Karitas Sif Halldórsdóttir

Björninn

Elise Marie Valjaots

SA


Varnarmenn

 

Hrund Thorlacius

Björninn

Eva Þorbjörg Geirsdóttir

Sparta Sarpsborg

Silja Rún Gunnlaugsdóttir

Sparta Sarpsborg

Eva María Karvelsdóttir

SA

Arndís Eggerz Sigurðardóttir

SA

Védís Áslaug Valdimarsdóttir

Björninn

Guðrún Marín Viðarsdóttir

SA


Sóknarmenn

 

Birna Baldursdóttir

SA

Silvía Rán Björgvinsdóttir

SA

Diljá Sif Björgvinsdóttir

Karlskrona HK

Guðrún Kristín Blöndal

SA

Jónína Margrét Guðbjartsdóttir

SA

Thelma María Guðmundsdóttir

SA

Kristín Ingadóttir

Björninn

Flosrún Vaka Jóhannesdóttir

Björninn

Katrín Hrund Ryan

SA

Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir

SR

Linda Brá Sveinsdóttir

SA