Kvennalandsliðin í fótbolta og íshokkí kepptu í Krullu

Kvennalandsliðin (mynd: Elvar Freyr Pálsson)
Kvennalandsliðin (mynd: Elvar Freyr Pálsson)

Í gær átti sér stað sögulegur krulluleikur þegar íshokkí kvennalandslið Íslands keppti við fótbolta kvennalandslið íslands. Bæði lið fóru með sigur af hólmi þar sem leikurinn var meira til gamans gerður sem hluti af hópefli liðanna en bæði lið voru við æfingar á Akureyri í undirbúningi sínum fyrir stórmótin sem liðin eru að fara keppa í á árinu - ekki í krullu þó.

Elvar Freyr Pálsson var að sjálfsögðu mættur til þess að fanga augnablikið og hér eru nokkrar myndir frá honum.