Kvennaliðið vann og gaf tóninn fyrir úrslitakeppnina

Ljósmynd Sigurgeir Haraldsson
Ljósmynd Sigurgeir Haraldsson
Í dag mættust SA og Björninn í kvennaflokki og lauk leiknum með 3 - 1 sigri heimakvenna eftir mikla baráttu í þrjár lotur.  Leikurinn fór af stað með miklum látum og fyrsta markið leit dagsins ljós eftir aðeins 38 sekúndur, en þá skoraði fyrirliði SA Rósa Guðjónsdóttir eftir sendingu frá Guðrúnu Blöndal.  En Adam, eða öllu heldur Eva, var ekki lengi í paradís því Flosrún Vaka jafnaði leikinn fyrir Björninn aðeins rúmri mínútu síðar og þannig stóðu leikar alveg fram í 3. lotu.

SA var sókndjarfara liðið á vellinum og skapaði sér reglulega hættuleg færi sem markvörður Bjarnarsins sá um að stoppa.  Sarah Smiley átti nokkur mjög góð tækifæri en það var ekki fyrr enn á 6. mínútu lotunnar sem henni tókst að skora, eftir mikla baráttu og gegnumbrot sem skilaði pekkinum í þaknetið.  Markið reyndist sigurmarkið en Björninn gerði harða hríð að marki SA og oft skall hurð nærri hælum.

Sarah var svo aftur á ferðinni skammt fyrir leikslok og innsiglaði sigurinn í frákasti eftir skot frá Birnu Baldursdóttur.  Liðið leit vel út og í raun allt annað sjá til þess nú en í fyrri viðureignum liðanna.  Framundan er mikil hokkívika en síðan hefst úrslitakeppnin í Reykjavík um næstu helgi.  Vonandi var liðið að gefa okkur smjörþefinn af því sem í vændum er með þessum sigri.

SA liðið lenti nokkrum sinnum einum leikmanni færri, eða alls 6 sinnum en fengu hins vegar aldrei að spila leikmanni fleiri þar sem eina brottvísun Bjarnarins var einn 10 mínútna persónulegur dómur.  "Penalty-killið" var gott, hélt hreinu í samtals 12 mínútur og verðu það að teljast mjög gott gegn sterku liði Bjarnarins.