Leikir í dag hjá Ynjum og Jötnum - Hokkíhelgi

Jötnar og Ynjur eru nú sunnan heiða, en liðin munu etja kappi við Björninn í Grafarvogi í dag.  Jötnar hefja leikinn kl. 16:30 en þetta er í fyrsta skiptið í vetur sem þeir mæta Birninum.  Um síðustu helgi mættu þeir Húnum og unnu þá með tveimur mörkum en töpuðu svo fyrir Víkingum í vikunni.  Björninn hefur einnig spilað tvo leiki, vann Víkinga í fyrsta leik mótsins og svo Húna í vikunni.

 

Ynjurnar hefja svo leik strax á eftir, en þær unnu Björninn í síðustu viðureign 16 - 2, en þær mega reikna með meiri mótstöðu að þessu sinni og væntanlega verður Karítas komin aftur í markið. 

 
En þetta er ekki það eina sem er að gerast í hokkíinu um helgina því einnig fer fram 4. flokks mót hér á Akureyri auk svo landsliðsæfinga kvenna í Reykajvík.