Marta og Ásdís með flottan árangur á fyrri degi á Inernational Childrens games í Innsbruck

Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir og Marta María Jóhannsdóttir lögðu af stað ásamt skíðakrökkum frá Akureyri á mánudaginn á Internatinal Childrens Games sem fram fara Innsbruck í Austuríki. Þær stöllur kepptu í stutta prógraminu í gær þar sem Ásdís var í 12. sæti með góðann árangur (24.45) nálægt sínu besta. Marta María átti frábæran dag og setti persónulegt met (31.81 stig) og endaði í 3. sæti eftir daginn.

Seinni keppnisdagurinn er í dag og þær keppa með langaprógrammið og við óskum þeim alls hins besta og setjum inn frétt um gengið um leið og þær berast.