Norðurlandamótið í listhlaupi hefst í Egilshöll á morgun

Fulltrúar LSA á Norðurlandamótinu 2017 Mynd: BK
Fulltrúar LSA á Norðurlandamótinu 2017 Mynd: BK

SA á fjóra keppendur á Norðurlandamótinu í listhlaupi sem hefst í Egilshöll á morgun. Þetta eru þær Aldís Kara Bergsdóttir, Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir, Marta María Jóhannsdóttir í Novice A og Emilía Rós Ómarsdóttir i Junior A. Þær hefja allar keppni á morgun. 

Keppni í Novice A hefst klukkan 12:00 

Marta María Jóhannsdóttir er 5 í fyrsta upphitunarhóp.

Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir er 6 í öðrum upphitunarhóp.

Aldís Kara Bergsdóttir er 6 í þriðja upphitunarhóp.

Keppni í Junior A hefst klukkan 16:00

Emilía Rós Ómarsdóttir er 4 í þriðja upphitunarhóp.

Gangi ykkur vel stelpur

Hægt er að fylgjast með mótinu live hér

Nánari upplýsingar um mótið er að finna hér