Phantons sterkar á svellinu

Sarah Smiley skorar eina mark liðsins í fyrri leik. Ljósm.Sigurgeir Haraldsson
Sarah Smiley skorar eina mark liðsins í fyrri leik. Ljósm.Sigurgeir Haraldsson
Nú er þremur leikjum á NIAC lokið.  Síðustu tveir leikir hafa verið á milli blárra og hvítra gegn hinum bresku í Slough Phantoms.  Það er skemmst frá því að segja að þær bresku eru gríðarlega sterkar og unnu þær nokkuð auðvelda sigra á okkar stúlkum en fyrri viðureignin sem var gegn Bláum fór 12 - 1 og sá seinni sem var gegn Hvítum fór 11 - 1.Á morgun fimmtudag mætir svo fullskipað landslið þeim bresku og vonandi mun munurinn verða minni gegn okkar sterkasta liði.  Leikurinn á morgun hefst kl. 11:00 og um að gera fyrir morgunhana að kíkja í Skautahöllina og sjá skemmtilega viðureign.