Rebekka Rós og Ísold Fönn farnar til Belgrad að keppa.

Ísold Fönn og Rebekka Rós
Ísold Fönn og Rebekka Rós

Þær stöllur Rebekka og Ísold eru komnar til Belgrad til að keppa á Skate Helena en það er mót í mótaröð European Criterium. Ísold mun keppa á morgun, miðvikudag og er hún í siðasta upphitunarhóp, nr.2 en hennar hópur mun byrja kl. 14.41 að íslenskum tíma. Áætla má að Ísold sé að keppa um fimmleytið. Rebekka mun keppa á fimmtudag og er hún einnig önnur í síðasta upphitunarhóp. Flokkurinn hennar byrjar um kl. 11.53 (íslenskur tími) en áætla má að Rebekka keppi um 13.10. Nánari upplýsingar um mótið er hægt að finna á heimasíðu mótsins: http://skatehelena.org/ og fyrir áhugasama að þá er hægt að horfa á mótið í beinni http://skatehelena.org/Live%20Cam.html

 

Við óskum þeim góðs gengis á mótinu J