Rebekka Rós stóð sig mjög vel í dag á Skate Helena

Nú hafa báðar SA stelpurnar okkar lokið keppni á Skate Helena í Serbíu. Rebekka Rós skautaði inn á ísinn um hádegisbilið og skilaði hún flottu prógrammi og uppskar 4. sætið í sínum flokki.

Til hamingju með árangurinn Rebekka Rós og góða ferð heim duglegu stúlkur.