Reykjavík Internation Games, RIG 2018, Listhlaup á skatum

Þessa helgi 26 til 28. janúar fór fram keppni í listhlaupi á skautum á vegum WOW Reykjavík International Games og Skaustasambands Íslands – ÍSS. Að þessu sinni tóku 14 stúlkur frá LSA þátt í mótinu.  9 stúlkur í intercup hópi og 5 stúlkur í hópi ISU keppenda. Þær stóðu sig allar með glæsibrag en 4 þeirra komust á verðlaunapall að þessu sinni.

Í keppnisflokki Chicks voru 14 keppendur og  landaði Sædís Heba Guðmundsdóttir bronsverðlaunum með 21. 07 stig en hún var efst af íslensku keppendunum, Indíana Rós Ómarsdóttir lenti í 6 sæti með 16.65 stig og Berglind Inga Benediktsdóttir hafnaði í því 8 með 14.39 stig.

Í keppnisflokki Cubs nældi Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir í 2 sætið með 25.88 stig, efst af íslensku keppendunum og Katrín Sól Þórhallsdóttir lenti í 6 sæti af 12 með 22.49 stig.

Í flokki Basic Novice A átti Júlía Rós frábæran dag og nældi sér í gullið með 33.31 stig. Eva María Hjörleifsdóttir  skautaði vel en hafnaði í 14 sæti með 17.16 stig. Kolfinna Ýr Birgisdóttir átti ekki sinn best dag og landaði 14.20 stigum.

LSA átti einn skautara í Basic Novice B að þessu sinni. Bríet Berndsen Ingvadóttir, stóð sig vel og náði 7 sæti af 13 með 22.20 stig.

Hörð keppni var á milli ISU keppenda að þessu sinni en þeir voru 10 talsins. Í Advanced Novice átti LSA 3 keppendur. Á fyrri keppnisdegi var Aldís Kara Bergsdóttir í 4 sæti eftir stutta prógrammið, Rebekka Rós Ómarsdóttir kom strax á hæla hennar og Ásdís Arna Fen Bergsveinsdóttir var í 7 sæti.  Aldís Kara skautaði vel í frjálsa prógrammi sínu daginn eftir og fékk 47.1 stig sem skilaði henni í þriðja sæti með 74.80 samanlögð stig. Rebekka Rós náði einnig að hífa sig upp, fékk 72.76 í samanlögð stig og hafnaði í 4 sæti. Ásdís Arna hélt sig við 7 sætið á þessu móti og fékk 67.66 í samanlögðum stigum.

Þær Emilía Rós Ómarsdóttir og Marta María Jóhannsdóttir kepptu fyrir hönd LSA í flokki Junior og stóðu sig vel. Marta María hafnaði í 5 sæti í harðri keppni en hún setti persónulegt stigamet á þessu  móti með 98.44 í heildarstig. Þess má geta að eftir stutta prógrammið var Marta Maria í Þriðja sæti á mótinu. Emilía Rós var í 8 sæti á fyrri keppnisdegi en náði að hífa sig upp í 6 sæti daginn eftir með frjálsa prógrammi sínu og fékk 91.24 stig í heildina.

Öllum þessum stúlkum eiga heiður skilið fyrir frammistöðu sína á mótinu og óskum við þeim til hamingju.

Landsliðstúlkurnar okkar, þær Emilía Rós, Marta María, Ásdís Fen, Aldís Kara og Rebekka Rós munu eftir nokkra daga halda til Finnlands á Norðurlandamót og óskum við þeim alls velfarnaðar á því móti.  Því miður getur Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir sem einnig er í hópi landsliðskvenna ekki tekið þátt í Norðurlandamóti að þessu sinni vegna meiðsla og þurfti hún af þeim sökum einnig að draga sig út úr RIG.  Óskum henni skjóts bata.