Reykjavíkurleikarnir 2019 - Dagur 1

Á föstudaginn fór fram keppni á Interclub hluta mótsins þar sem SA átti fjóra keppendur í jafn mörgum flokkum. Hófst keppni dagsins með yngsta flokknum Chicks þar sem Berglind Inga Benediktsdóttir stóð sig vel. Næst á eftir kom flokkurinn Cubs þar sem Sædís Heba Guðmundsdóttir stóð sig einnig vel, en í þessum tveimur flokkum eru aðeins veitt þátttöku verðlaun. Því næst var það Kristbjörg Magnadóttir sem setti persónulegt stigamet í flokknum Basic Novice. Í lokin var það svo Telma Marý Arinbjarnardóttir í flokknum Intermediet Novice og stóð hún sig einnig vel. Þar með lauk keppni í Interclub hluta RIG-mótsins og óskum við þessum flottu stelpum innilega til hamingju með glæsilegan árangur.

ISU hluti mótsins hófst svo strax á eftir Interclub keppninni með smá opnunarhátíð. Keppnin byrjaði á Advanced Novice hópnum í stuttu prógrami þar sem við eigum tvo keppendur þær Júlíu Rós Viðarsdóttur og Freydísi Jónu Jing Bergsveinsdóttur. Júlía setti persónulegt stigamet, 28,51 og er í 3. sæti eftir gærdaginn, jafn framt er hún fyrst af Íslensku skauturunum. Freydís stóð sig einnig vel og er þetta hennar fyrsta keppni á Íslandi í nýjum keppnisflokki, Freydís fékk 22,44 stig sem jafnframt er persónulegt stigamet og er því í 10. sæti. Í þessum flokki er mjög hörð og spennandi barátta um sætin og verður laugardagurinn æsispennandi þar sem þessar stúlkur keppa í langa prógraminu.

Í lokin látum við fylgja myndir af verðlaunaafhendingu í Chicks og Cubs frá því í gær.

Cubs Chick