Keppni á Reykjavíkurleikunum í listhlaupi 2021 hefjast í dag

Reykjavíkurleikarnir í listhlaupi hefjast í dag. Eins og fram kemur á síðu skautasambandsins þá verða samhliða afhentir Íslandsmeistaratitlar ársins 2020.
Þetta var ákveðið af stjórn í ljósi þess að Íslandsmóti ÍSS, sem átti að fara fram í nóvember sl., var aflýst sökum æfinga og keppnisbanns sem hafði verið um land allt. Því verður verðlaunaafhending tvöföld.

Bein útsending verður frá keppninni og má sjá streymið hér. Hér má finna dagskrá mótsins og hér keppnisröð.