SA Íslandsmeistarar í U14 um helgina

SA varð um helgina Íslandsmeistari í U14 flokki en liðið sigraði alla sína leiki í síðasta helgarmóti tímabilsins sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri. SA vann 10 af 12 leikum sínum í vetur alla gegn SR.  Í flokki b-liða urðu SA-Jötnar í 2. sæti á eftir Fjölni en mikil spenna var í flokknum þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í síðasta leik.  Við óskum keppendum til hamingju með frábæran árangur í vetur en það verður spennadi að fylgjast með öllum þessum flottu íshokkíkrökkum á komandi árum.