SA liðin sterk á heimavelli

SA liðin unnu bæði sigra á Fjölni í Hertz-deildunum á laugardag. SA Víkingar unnu Fjölni 6-4 og SA stúlkur 14-3.

Það voru Fjölnismenn sem byrjuðu leikinn í Hertz-deild karla betur á laugardag en þeir skoruðu fyrstu tvö mörkin í leiknum og í bæði skiptin var það Kristján Kristinsson eftir undirbúning Emils Alengards sem bæði þjálfar og spilar nú með Fjölni og styrkir liðið á svellinu til muna. Gunnar Arason minnkaði muninn í eitt mark fyrir SA Víkinga áður en Emil Alengard kom Fjölni í 3-1 og nú eftir undirbúning Kristjáns Kristinssonar. Hafþór Sigrúnarson  minnkaði svo muninn í eitt mark en skömmu síðar varð slys á vellinum þar sem leikurinn var stöðvaður og ákveðið að taka leikhlé meðan sjúkraflutningarmenn gátu athafnað sig. Leikurinn hélt þá áfram og Fjölnir bættu við fjórða markinu og aftur var það Kristján með sitt þriðja mark í leiknum og Emil með stoðsendingu og áttu þá báðir þátt í öllum mörkum Fjölnis sem urðu ekki fleiri í leiknum. Gunnar Arason minnkaði muninn í eitt mark þegar hann komst einn í gegnum vörn Fjölnis meðan Víkingar spiluðu einum leikmanni færri og Róbert Hafberg jafnaði svo leikinn fyrir Víkinga með góðu skoti. Gunnar Arason kom Víkingum yfir í leiknum þegar skammt var liðið á þriðju lotuna með góðu skoti og sínu þriðja marki í leiknum en Orri Blöndal bætti svo í forystuna með þrumu skoti af bláu línunni og staðan 6-4 en það urðu lokatölur leiksins. Virkilega sterkur sigur hjá SA Víkingum sem eru nú búnir að vinna báða leikina sína í deildinni. Næstu leikir Víkingar eru í Evrópukeppninni Continental Cup sem fram fer í  Vilníus í Litháen daganna 25. Og 26. September áður en liðið tekur á móti SR í Hertz-deildinni 2. Október á heimavelli.

Fyrsti leikurinn í Hertz-deild kvenna var nokkuð spennandi í upphafi leiks þar sem mikið jafnræði var milli liðanna. Fjölnisstúlkum vantaði þó aðalmarkverði sína í leiknum og tók því formaður félagsins það á kassann að standa í eldlínunni og gerði bara býsna vel. Það tók SA stúlkur 7 mínútur að finna leiðina í markið en þá skoraði Ragnhildur Kjartansdóttir með góðu skoti upp í markhornið. Hilma Bergsdóttir bætti svo við tveimur mörkum og Kolbrún Björnsdóttir skoraði það fjórða í sínum fyrsta leik í meistaraflokki. Staðan 4-0 SA í vil eftir fyrstu lotuna en mörkunum hreinlega rigndi svo inn í annarri lotunni en 12 mörk voru skoruðu í lotunni en þar af áttu SA stúlkur 9. Berglind Leifsdóttir, Jónina Guðbjartsdóttir, Gunnborg Jóhannesdóttir, Katrín Björnsdóttir, María Eiríksdóttir, Ragnhildur Kjartansdóttir og Magdalena Sulova skoruðu mörkin fyrir SA og þetta var jafnframt fyrsta mark Magdalenu í meistaraflokki í sínum fyrsta meistaraflokksleik. Aðeins eitt mark var svo skorað í þriðju lotunni en það skoraði Hilma Bergsdóttir sitt þriðja mark í leiknum og lokatölur 12.-3. SA stúlkur eiga næst leik gegn SR á heimavelli þegar leikinn verður tvíhöfði daganna 25. og 26. september.