SA-stúlkur með enn einn sigurinn

Mynd: Elvar Freyr Pálsson
Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Í kvöld áttust lið SA og Reykjavíkur við í Skautahöllinni á Akureyri. Fyrir leikinn í kvöld var lýst vali hokkídeildarinnar á hokkífólki ársins sem eru þau Kolbrún María Garðarsdóttir og Hafþór Andri Sigrúnarson. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju, þau eru vel að titlunum komin.

SA liðið hefur unnið í öllum leikjum liðanna í vetur ef frá er skilinn fyrsti leikurinn sem Reykjavíkurstúlkur unnu í vítakeppni eftir að staðan hafði verið jöfn eftir venjulegan leiktíma og framlengingu. Leikurinn í kvöld byrjaði af hörku og Reykjavíkurstúlkur ætluðu greinilega að standa upp í hárinu á heimastúlkum. Kolbrún kom sínu liði svo á bragðið um miðja fyrstu lotuna þegar skoraði fyrsta mark leiksins með toðsendingu frá Söruh og Önnu Sonju. Jónína bætti stuttu síðar við öðru marki eftir mikið þóf fyrir framan mark Reykjavíkurstúlkna. Lara og Linda áttu stoðsendinguna. Þriðja markið átti svo Berglind, glæsilegt mark með þrumuskoti eftir stoðsendingu frá Söruh.

Seinni loturnar voru tíðindalitlar og leikur beggja liða ómarkviss. Helstu tilþrif áttu SA stúlkur í undirtölu þegar þeim tókst að koma í veg fyrir að Reykjavíkurliðið kæmi pekkinum yfir miðjulínuna í átt að SA markinu og eitt lokamark til að innsigla sigurinn. Það var Anna Sonja sem átti markið og Kolbrún var með stoðsendinguna. 

Sami Lehtinen, þjálfari SA var að mestu ánægður með leik kvöldsins. Hann sagði liðið hafi byrjað vel og verið sterkt í fyrstu lotunni. Fyrri helmingur miðlotunnar hafi hins vegar ekki verið nógu góður og heilt yfir mætti  liðið bæta leik sinn fyrir framan mark andstæðinganna. Birta átti margar góðar vörslur og lék vel allan leikinn.

Greinileg þreytumerki mátti sjá á Reykjavíkurliðinu undir lok leiksins enda voru þær einungis með 9 útispilara. Lokatölur 4-0 SA í vil. Næsti leikur liðanna er næsta laugardag í Laugardalnum og laugardaginn þar á eftir er heimaleikur hjá stelpunum, síðasti leikur fyrir jól.

Mörk (stoðsendingar): Kolbrún 1 (1), Anna Sonja 1 (1), Jónína 1, Berglind 1, Sarah (2), Lara (1), Linda (1)

Birta varði 24 skot.