SA vann Reykjavík auðveldlega í Hertz-deild kvenna

Eva María spænir upp völlinn (mynd: Elvar P.)
Eva María spænir upp völlinn (mynd: Elvar P.)

Kvenna lið Skautafélags Akureyrar vann sannfærandi sigur á liði Reykjavíkur, 7-0, í gærkvöld á heimavelli sínum í Skautahöllinni á Akureyri. SA hafa því fullt hús stiga úr fyrstu þremur leikjum vetrarins. Skautafélags Akureyrar átti 69 skot á mark Reykjavíkur á Karítas Halldórsdóttur sem stóð vaktina í marki Reykjavíkur. Átti hún á köflum stórleik og sýndi flott tilþrif á milli stanganna. 

Fyrsta lota fór 3-0, voru það varnamennirnir Eva Karvelsdóttir og Teresa Snorradóttir sem sáu um að skora mörkin en norðankonur voru í sókn alla lotuna og stjórnuðu leiknum.

Önnur lota var með svipuðu sniði, því einnig skoruðu Skautafélagskonur þrjú mörk í lotunni, þar á meðal skoraði Silvía Björgvinsdóttir glæsilegt mark af bláu línunni þegar heimakonur voru einni fleiri. Hin mörkin tvö skoruðu Eva Karvelsdóttir og Ragnhildur Kjartansdóttir.

Þriðja lota var að mestu tíðindalítil, hluti SA liðsins spilaði ekki lotuna og segja má að allur vindur var horfinn úr báðum liðum. SA kom pekkinum í netið einu sinni og var þar að verki Teresa Snorradóttir á ný, með sitt þriðja mark í leiknum. Teresa er spilaði sem framherji í þetta sinn og gerði það með stakri prýði.