SA Víkingar geta tryggt sér deildarmeisaratitilinn með sigri á morgun

SA Víkingar taka á móti Fjölni á þriðjudag í Skautahöllinni Akureyri kl: 19:30. SA Víkingar eru nú með 8 stiga forystu á toppi Hertz-deildarinnar og geta með sigri tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Miðaverð 1000 kr. frítt fyrir 16 ára og yngri og framhaldsskólanemum er boðið frítt á leikinn gegn framvísun skólaskirteinis. Sjoppan selur kaffi og með því í leikhléum. Forsala miða fer fram í miðasölu appinu Stubbur