SA Víkingar Íslandsmeistarar 2019

SA Víkingar unnu Skautafélag Reykjavíkur á laugardag í þriðja sinn í úrslitakeppninni og lönduðu þar með Íslandsmeistaratitlinum fyrir árið 2019 á heimavelli. SA Víkingar unnu leikinn á laugardag 4-1 og úrslitakeppnina þar með 3-0. Nánast fullkomið ár hjá SA Víkingum að baki en liðið vann alla 3 titlana sem í boði voru á tímabilinu, Lýsisbikarinn, deildarmeistaratitilinn og svo að lokum Íslansmeistaratitilinn ásamt því að hafa farið lengst allra íslenskra liða í evrópsku Continental Cup í haust og vakið verskuldaða athygli.

SA Víkingar byrjuðu leikinn af fullum þunga á laugardag en lentu snemma í refsivandræðum. SR fékk tvær yfirtölur þar sem þeir fengu góð færi til þess að ná forystunni í leiknum en Adam Beukeboom í marki Víkinga varð allt sem á markið kom. SA Víkingar keyrðu upp hraðan og sóknarþungann þegar þeir losnuðu úr prísundinni sem skilaði fyrsta marki leiksins á 15 mínútu þegar Jordan Steger skoraði með góðu skoti. Thomas Stuart-Dant bætti við forystu Víkinga strax í kjölfarið á marki Jordans með hnitmiðuðu skoti af löngu færi beint upp í markvínkilinn og SA því komið í góða stöðu. SR náði að minnka forystuna undir lok lotunnar með skoti frá Aroni Knútssyndi sem Adam missti klaufelag undir hanskann og staðan því 2-1 eftir fyrstu lotu. Önnur lotan var æsispennandi og liðin voru greinilega meðvituð um mikilvægi fjórða marksins og fengu bæði lið góð tækifæri á að ná því en það voru SA Víkingum sem tókst það þegar Jussi Sipponen kláraði góða skyndisókn af sínum alkunnu töfrum og kom SA Víkingum í lykilstöðu. Fyrirliðinn Andri Már Mikaelsson kom Víkingum í ennbetri stöðu skömmu síðar með góðu skoti í marhornið eftir fallegan undirbúning Jóhanns Leifssonar og meistaratitilinn í augsýn. Í þriðju lotunni var nánst ljóst hvoru megin sigurinn myndi enda en SR reyndu hvað þeir gátu á meðan SA Víkingar spiluðu upp á öryggið og fátt markvert gerðist í lotunni nema Víkingar fengu dæmt á sig víti en þá voru aðeins rétt rúmar 3 mínútur eftir af leiknum og þegar það geigaði hjá var öll von úti og SA Víkingar fögnuðu sínum 21 Íslandsmeistaratitli.

Þrátt fyrir fyrirfram væntingar um gott gengi SA Víkinga í úrslitakeppninni varð fljótt ljóst að SA Víkingar þurftu að hafa sig alla fram til að verja Íslandsmeistaratitilinn í ár þar sem lið SR var mun sterkara en það hafði sýnt í deildarkeppninni og virkilega vel skipulagt af Daniel Kolar þjálfara liðsins sem hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að úrslitakeppnum. Fyrstu tveir leikirnir voru gríðarlega jafnir og má næstum segja að Víkingar hafði stolið sigrunum í þeim leikjum og þá sérstaklega í Laugardalnum þar sem SR var sterkari aðilinn í leiknum. SA Víkingar náðu ekki að sýna sínar bestu hliðar í fyrstu tveimur leikjum úrslitakeppninnar og kannski kom styrkur SR liðsins þeim á óvart. Í 3. leik skein þó í gæðin sem búa í Víkinga liðinu og það var á endanum nóg. Jussi Sipponen þjálfari Víkinga og Clark McCormick aðstoðarmaður hans gerðu breytingar sem breyttu gangi mála á réttum tímum og spiluðu vel úr þeim leikmannahóp sem þeir höfðu til verksins en Jussi hefur nú unnið 3 Íslandsmeistaratitla í meistaraflokki karla sem þjálfari á sínum 4 árum sem þjálfari liðsins og verður að teljast ærið afrek.

Bestu leikmenn tímabilsins voru heiðraðir í verðlaunaafhendingunni í lok leiks og voru leikmenn SA Víkingar þar nokkuð áberandi en liðið hafði yfirburði í deildinni lengi framan af. Jordan Steger fékk verðlaun fyrir að vera markahæsti leikmaður tímabilsins í Hertz-deildinni en einnig var hann valinn besti sóknarmaður deildarinnar. Robbie Sigurðsson leikmaður SR var stigahæsti leikmaður tímabilsins, Jussi Sipponen var valinn besti varnarmaður deildarinnar og Adam Beukeboom valinn bæði besti markamaðurinn sem og mikivægasti leikmaðurinn. Til hamingju SA Víkingar með 21 Íslandsmeistaratitilinn!