SA Víkingar mæta SR laugardag

SA Víkingar taka á móti SR-ingum í Hertz deildinni á morgun, laugardag kl. 16.30 í Skautahöllinni á Akureyri. Víkingum vantar aðeins eitt stig til þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Strax að loknum leik hefst leikur SA 3. flokks en þeir mæta einnig SR og geta með sigri farið langleiðina með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í 3. flokki.