SA Víkingar með fyrsta Evrópusigurinn – næsti leikur kl. 15 í dag (Í beinni)

Jussi teiknar upp leikkerfi fyrir leikmenn
Jussi teiknar upp leikkerfi fyrir leikmenn

SA Víkingar lönduðu sögulegum sigri á sterku liði Irbis Skate frá Sofíu á þeirra heimavelli í gærkvöld. SA Víkingar unnu í vítakeppni eftir æsispennandi leik sem seint verður gleymt fyrir margar sakir. SA Víkingar mæta meistaraliði síðasta árs frá Istanbúl í Tyrkalndi, Zeytinburnu Belediyesport, í dag kl. 15.00 á íslenskum tíma og verður sýndur í beinni útsendingu hér.

Undirbúningurinn fyrir leikinn í gærkvöld var nokkurn veginn eftir bókinni eins og oft má verða í þessum heimsluta sem byrjaði á því að leikmönnum var boðið uppá kransaköku sem síðustu máltíð fyrir leik og ekkert annað. Það skipti engu máli hvað var sagt né reynt, þetta sögðu heimamenn vera alveg fullbúna máltíð sem væri alveg nægilega góð fyrir útiliðið. Hvað sem því líður náðu leikmenn að nærast og mættu tilbúnir til leiks. Dómararnir voru einnig mættir til leiks og ljóst var frá byrjun að dómararnir voru á bandi heimamanna. SA Víkingar spiluðu 3 gegn 5 löngum köflum í fyrstu lotu fyrir óljós brot og heimamenn nýttu sér það og náðu tveggja marka forystu á meðan heimaliðið þurfti að höggva kylfur Víkinga í tvennt til þess að fá dæmda á sig dóma. SA Víkingar létu ekki mótlætið fara of mikið í skapið á sér og héldu áfram sem skilaði fyrsta markinu en eftir fallega sókn sendi Hafþór Andri fallega sending á Rúnar Frey sem kláraði vel í opið markið og Víkingar búnir að skora fyrsta markið í Evrópu. Stuttu síðar fá SA Víkingar óvænta yfirtölu og fara í vel útfærða sókn þar sem Jóhann Már finnur Ingvar í slottinu og hamrar pökkinn upp í þaknetið og jafnar leikinn. SA Víkingar voru með tögl og haldir í annarri lotu og fengu fjölmörg færi og náðu verðskuldaðri forystu þegar Kristján Árna rænir pekkinum af aftasta varnarmanni Búlgaranna og finnur Sigmund Sveinsson framan við markið sem klárar af einstakri snilld beint upp í markhornið. SA Víkingar fóru með þessa forystu inn í síðasta leikhlutann og héldu áfram að pressa á varnarmenn Búlagaranna. Eftir góða pressu endar pökkurinn á kylfunni hjá Hafþóri Andra sem neglir pekkinum í markið og kemur Víkingum í 4-2. Búlgararnir héldu pekkinum mikið eftir þetta en gekk illa að koma sér í afgerandi færi en SA Víkingar fengu aftur tvo mjög óljósa dóma á sig undir lok leiksins sem Búlgarar nýttu og minnkuðu muninn. Á síðustu mínútu leiksins ná Búlgararnir svo að jafna og leikurinn fór í framlengingu.

Fyrir framlenginguna teiknar Jussi þjálfari upp lúmskt leikerfi fyrir fyrsta uppkast þar sem Andri Már stekkur af ísnum á meðan Jón Benedikt stekkur inná ofar á bekknum og sleppur þannig óséður aftur fyrir vörn Búlgara og fær langa sending yfir allann völlinn og kemst í dauðafæri sem markvörður Búlgara rétt nær að verja. Ekkert var skorað í framlengingunni svo farið var í vítakeppni en meðan beðið var eftir að ísinn væri heflaður kemur í ljós að starfsmaður íshefilsins sé farinn heim sem kom lítíð á óvart miðað við það sem á undan var gengið og því engin heflun. Í vítakeppninni stóð Adam Beukeboom eins og klettur í marki Víkinga og hélt markinu hreinu á meðan Andri Már og Thomas Dant kláruðu sín víti og SA Víkingar náðu sínum fyrsta sigri í Evrópu og fyrsta sigri íslensks íshokkíliðs í Evrópukeppni. Rúnar Freyr Rúnarsson var svo valinn maður leiksins að loknum leik og fer í sögubækurnar fyrir að skora fyrsta mark Skautafélags Akureyrar í Evrópukeppni. Frábær byrjun á Evrópuævintýrinnu hjá Víkingum en leikmenn geta ekki fagnað of lengi þar sem næsta verkefni hefst strax í dag þegar liðið mætir meistaraliði síðasta árs frá Istanbúl í Tyrkalndi, Zeytinburnu Belediyesport, kl. 15.00 á íslenskum tíma og verður sýndur í beinni útsendingu hér.