SA Víkingar með sannfærandi sigur á Birninum

Jói var sprækur í kvöld (mynd: Elvar P.)
Jói var sprækur í kvöld (mynd: Elvar P.)

SA Víkingar unna 5-4 sigur á Birninum í Hertz-deildinni í kvöld eftir ævintýralega endurkomu líkt og þegar sömu lið mætust í fyrsta leik tímabilsins. Björninn náðu 3-0 forystu um miðja fyrstu lotu en SA Víkingar unnu sig hægt og bítandi til baka inn í leikinn og náðu að snúa stöðunni 5-3 forystu í lok annarar lotu áður en Björninn náðu að minnka muninn í eitt mark. SA Víkingar eru því enn á toppi deildarinnar með 15 stig eftir 6 leiki en aðeins Esja geta ógnað Víkingum á toppnum en þeir eiga tvo leiki til góða.

Björninn fékk óskabyrjun í leiknum í kvöld þar sem Víkingar gerðu sig tvívegis seka um skelfileg mistök í varnarleiknum þar þeir hleyptu Birninum í yfirmannaðar skyndisóknir sem þeir nýttu í bæði skiptin og náðu tveggja marka forystu snemma leiks þvert gegni gangi leiksins. Björninn fékk svo þriðju gjöfina þegar skot þeirra af bláu línunni í yfirtölu endaði í markinu og staðan orðin 3-0 eftir tæplega 9 mínútna leik. SA Víkingar skiptu Róberti Steingrímssyni markverði úr markinu í kjölfarið en hann hefur verið drjúgur fyrir Víkinga það sem af er tímabilii en í hans stað kom Jakob Jóhannesson sem spilaði sinn fyrsta heila leik í meistaraflokki í síðustu viku. SA Víkingar héldu áfram að sækja þrátt fyrir vandræðin og náðu að minnka munninní  1-3 um miðja lotuna þegar Sigurður „Sykurhendur“ Sigurðsson lék laglega á varnarmenn Bjarnarins og lagði pökkinn í netið. SA Víkingar voru með öll völd á vellinum eftir þetta og Jussi Sipponen lagði pökkinn efst í markhornið eins og honum einum er lagið undir lok lotunnar og lagaði stöðuna í 2-3.

SA Víkingar voru áfram með undirtökin í annarri lotunni en fjöldi tæknilegra mistaka gerði þeim erfitt fyrir og margar sóknir runnu út í sandinn að þeim sökum. Það var því ekki fyrr en um miðja aðra lotuna að SA Víkingar náðu að jafna metin eftir glæsilegt einstaklingsframtak Jordan Stegers sem prjónaði sig upp allann völlinn og lagði pökkinn fram hjá fyrrum Víkingnum Ómari Smárassyni í marki Bjarnarins. Annar fyrrum Víkingur, Birkir Árnason,  gerði sig sekan um leikbrott í kjölfarið sem spilandi þjálfari Bjarnarins var ósáttur við og öskraði sig út úr leiknum svo Bjarnarmenn þurftu að spila höfuðlausir síðustu 25 mínútur leiksins þar sem engin aðstoðarþjálfari var til staðar á bekknum.  SA Víkingar gengu á lagið og skoruðu tvö mörk í yfirtölunni í kjöalfarið það fyrsta frá Jóhanni Leifssyni og hið síðra frá Jussi Sipponen með glæsilegu sircusmarki.

Bjarnarmenn náðu að laga stöðuna um miðja þriðju lotuna en SA Víkingar spiluðu skynsamlega það sem eftir lifðu leiks og náðu meðal annars að bægja frá tveimur yfirtölum Bjarnarins. SA Víkingar halda þar með toppsætinu og geta verið nokkuð sælir með stigin þrjú miðað við byrjunina í leiknum. SA Víkingar mæta næst Esju sem nýkomnir eru heim frá Evrópumóti félagsliða en leikurinn fer fram í Laugardalnum 17. október og verður mikil prófraun fyrir SA Víkinga. Næsti heimaleikur Víkinga er ekki fyrr en 28. október en verður ekki af síðri gerðinni en þá mætir einmitt meistaralið Esju í Skautahöllina á Akureyri.