SA Víkingar með stórsigur á SR

Jussi Sipponen skoraði þrennu (mynd: Elvar P.)
Jussi Sipponen skoraði þrennu (mynd: Elvar P.)

SA Víkingar lögðu SR með 11 mörkum gegn 3 í Hertz-deild karla á laugardag. Jussi Sipponen var atkvæðamikill að vanda í liði Víkinga og skoraði 3 mörk í leiknum auk þess að eiga stoðsendingu í öðrum þremur mörkum. Jakob Jóhannesson stóð í marki Víkinga og átti góðann leik en þetta var fyrsti meistaraflokks leikur drengsins sem hann spilar frá byrjun til enda. SA Víkingar náðu með sigrinum efsta sæti deildarinnar en Esja á leik til góða. Hér má sjá myndir úr leiknum frá sem Elvar Pálsson myndaði.

SR byrjðu leikinn betur á laugardag og náðu forystu í 1. lotu með marki Daníels Magnússonar eftir fallegt einstaklingsframtak. SA Víkingar voru þó sterkari aðilinn í lotunni en Arnar Hjaltsted í marki SR var liði sínu drjúgur. SA Víkingar byrjuðu aðra lotuna af krafti og náðu að jafna metin snemma með marki frá Jussi Sipponen. Jussi var svo aftur á ferðinni skömmu síðar þegar hann skoraði annað mark SA og náði 2-1 forystu fyrir SA. Mörkunum rigndi inn í kjölfarið en SA skoraði þrjú mörk í viðbót áður en lotan var á enda á móti einu marki SR svo staðan var orðin 5-2 fyrir síðustu lotuna. SA Víkingar voru svo með algjöra yfirburði í síðustu lotunni og skoruðu 6 mörk á meðan SR náði aðeins að skora eitt og lokatölur því 11-3 SA í vil.

SA Víkingar mæta SR svo aftur næsktomandi laugardag í Laugardalnum og geta með sigri bætt við forystu sína á topi deildarinnar þar sem Esja tekur þátt í Evrópukeppni um helgina. Næsti heimaleikur Víkingar er svo laugardaginn 7. október þegar liðið tekur á móti Birninum í Skautahöllinni á Akureyri en leikurinn hefst kl 16.30