SA Víkingar taka á móti SR í Hertz-deildinni á laugardag kl 17.30!

Úr leik liðanna á síðasta tímabili(mynd:Sigurgeir)
Úr leik liðanna á síðasta tímabili(mynd:Sigurgeir)

SA Víkingar taka á móti Skautafélagi Reykjavíkur í opnunarleik tímabilsins í Herz-deildinni laugardaginn 6. október á heimavelli í Skautahöllinni á Akureyri. Leikurinn hefst kl. 17.30 og miðaverð er 1000 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. SA Víkingar eru sjóðheitir um þessar mundir eftir frábæra framgöngu í lýsisbikarnum og svo í Evrópukeppninni. SR koma væntanlega einnig kokhraustir til leiks eftir sterkann sigur á Birninum í fyrsta leik tímabilsins og því má búast við hörkuleik tveggja góðra liða. Ekki missa af þessu!