Sarah Smiley hetjan í glæsilegum sigri Íslands

Sarah Smiley skoraði 4 mörk og átti tvær stoðsendingar í glæsilegum sigri Íslands á Nýja-Sjálandi á heimsmeistaramótinu í gær. Sarah lagði upp tvö fyrstu mörk Íslands í leiknum en Nýja-Sjáland leiddi 3-2 þangað til 4 sekúndur voru eftir af leiknum en þá skoraði Sarah jöfnunarmark Íslands. Leikurinn fór í framlengingu og svo vítakeppni þar sem Sarah tók sig til og jafnaði metin í 5. víti Íslands. Hún var svo látin taka 6. og 7. vítaskotin og skoraði örugglega úr öllum þremur vítunum og tryggði Íslandi mikilvægan sigur í baráttunni um verðlaunarsætin á heimsmeistaramótinu. Glæsilegur leikur hjá okkar stelpum og þá sérstaklega hjá Söruh sem liðsfélagar völdu sem töframann leiksins. Ísland á frídag í dag en mætir Tyrklandi á morgun kl 12.00 á íslenskum tíma og er sýndur beint hér