Sigur og tap í gærkvöldi fyrir sunnan

Ljósmynd Ásgrímur Ágústsson
Ljósmynd Ásgrímur Ágústsson

Í gærkvöldi fóru fram tveir leiki í Egilshöllinni þegar meistaraflokkar karla og kvenna Bjarnarins og SA tókust á.  Karlaflokkurinn reið á vaðið og fór mikinn strax í upphafi leiks og náði fljótt 5 marka forystu og voru í þægilegri 5 – 0 stöðu eftir 1. lotu.  Leikurinn jafnaðist í framhaldinu en ekkert mark var skoraði í 2. lotu og í 3. lotu settu bæði lið tvö mörk.  Lokastaðan 7 – 2 SA í vil og nokkuð auðveldur sigur í höfn.   Mörk SA skorðu Steinar Grettisson með hat-trick, Orri Blöndal með 2, Ingvar Jónsson 1 og Helgi Gunnlaugsson 1.

Strax á eftir mættust kvennaliðin og þar snérist dæmið við og Björninn bar sigur úr býtum.  SA liðið á titil að verja, en liðið teflir nú fram tveimur liðum á Íslandsmótinu.   Björninn hafði yfirhöndina frá upphafi en SA liðið var þó alltaf skammt undan.  Loturnar fóru 2-1, 2-1 og 0-1.  Mörk SA skoruðu  Rósa Guðjónsdóttir, Anna Sonja og Smiley.  Mörk Bjarnarins skoruðu Flosrún og Hanna Rut, tvö mörk hvor.