Snillingarnir okkar stóðu sig vel á Vinamóti LSA og Frost um helgina

LSA átti 5 keppendur á Vinamóti LSA og Frost um helgina. Þetta eru Ylfa Rún Guðmundsdóttir í 6 ára og yngri stúlkur, Athena Lindeberg Maríudóttir og Kristín Marý Kristjánsdóttir í 8 ára og yngri stúlkur og drengir, Salka Rannveig Rúnarsdóttir í 10 ára og yngri stúlkur og Katrín Lind Jónsdóttir í 12 ára og yngri stúlkur. Þær stóðu sig allar gríðarlega vel og voru sér og félaginu sínu til mikils sóma og óskum við þeim innilega til hamingju.

 

Þess má geta að allar þessar stúlkur auk annara frá félaginu þreyttu grunnpróf á föstudaginn. Því má segja að mikið hafi verið um að vera hjá deildinni þessa vikuna.