Stúlkurnar okkar stóðu sig vel á Norðurlandamótinu

Landslið Íslands (IceSkate.is)
Landslið Íslands (IceSkate.is)

Norðurlandamótið í listhlaupi í Hørsholm í Danmörku kláraðist núna um helgina. Aldís Kara Bergsdóttir bætti stigamet íslenskra skautara á Norðurlandamóti í Senior flokki en hún náði 119.75 stigum og endaði í 9. sæti en hún fékk 42.09 stig í stutta og 77.66 stig í frjálsa.

Júlía Rós Viðarsdóttir keppti í Junior flokki fékk 40.60 stig í stutta prógraminu og 67.62 stig fyrir frjálsa og 108.22 stig í heildina og lenti í 8. sæti á mótinu. Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir og Sædís Heba Guðmundsdóttir kepptu í Advanced Novice og fékk Freydís 21.23 stig í stutta, 43.58 í frjálsa og 64.81 stig í heildina og 10. sæti á mótinu. Sædís fékk 22.70 stig í stutta, 34.06 í frjálsa og 56.76 í heildarstigum og 12. sætið á sínu fyrsta Norðurlandamóti. Flott frammistaða hjá stúlkunum okkar verður spennandi að fygljast með þeim á RIG sem fram fer um næstu helgi í Laugardal.